Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis norður síðan 2017 (Samfylkingin).
Fædd í Reykjavík 14. mars 1972. Foreldrar: Helgi Skúlason (fæddur 4. september 1933, dáinn 30. september 1996) leikari og Helga Bachmann (fædd 24. júlí 1931, dáin 7. janúar 2011) leikkona. Maki: Grímur Atlason (fæddur 6. desember 1970) framkvæmdastjóri. Foreldrar: Björk Líndal og Atli Magnússon. Börn: Ásta Júlía (2001), Arnaldur (2002). Dóttir Helgu og Sindra Freyssonar: Snærós (1991). Stjúpsonur, sonur Gríms: Emil (1995).
Stundaði nám við MH 1988–1994. Leikkona frá Leiklistarskóla Íslands 1998. BA-próf í lögfræði HR 2009. Meistarapróf í lögfræði HR 2011. Lögmannsréttindi 2011.
Leikkona og leikstjóri hjá Leikfélagi Akureyrar 1999. Leikkona hjá New Perspective Theatre Company 2000. Dagskrárgerðarkona á Bylgjunni 2000–2002. Upplýsingafulltrúi hjá Eddu, miðlun og útgáfu, 2001–2002. Dagskrárgerðarkona á Ríkisútvarpinu 2002–2005 og á Talstöðinni og NFS 2005–2006. Rekstrarstjóri á Kaffi Edinborg sumarið 2007. Blaðakona á Mannlífi 2008. Í stjórn Íslandspósts 2008–2010.
Löglærður fulltrúi á Lögron, Lögfræðistofu Reykjavíkur og nágrennis, 2009–2011. Héraðsdómslögmaður og eigandi Völvu lögmanna, 2011–2017. Stundakennari í stjórnskipunarrétti við Háskólann í Reykjavík 2012–2013. Varaformaður Þjóðleikhúsráðs 2012–2014. Í stjórn Dansmenntar ehf. frá 2013. Í höfundaréttarráði 2014 - 2017. Athafnastjóri hjá Siðmennt, félagi siðrænna húmanista, frá 2016.
Formaður Samfylkingarfélagsins í Reykjavík 2008–2010. Í stjórn Félags íslenskra leikara 2014–2016.
Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis norður síðan 2017 (Samfylkingin).
Kjörbréfanefnd 2017–, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd 2017–2019 (formaður 2017–2019), umhverfis- og samgöngunefnd 2017–2019, velferðarnefnd 2019– (formaður 2019–).
Þingmannanefnd um málefni barna 2018 -, Þingmannanefnd um breytingar á lögræðislögum 2020 -,
Tekið af vef Alþingis