Fjármálaráðherra ber ábyrgðina

Það hefur verið athyglisvert og átakanlegt að fylgjast með stjórnarliðum verja söluna á 22.5 % hlut almennings í Íslandsbanka. Það sem í upphafi var lýst sem vel heppnuðu útboði hefur nú birst sem lokað útboð til sérvalinna á vildarkjörum. Það er brot á jafnræðisreglu laga um sölumeðferð ríkis í fjármálafyrirækjum.  

Ráðherrar komu nokkuð beygð fram eftir að upp komst um aðferðina. Sögðu að „velta yrði við hverjum steini“, að „útboðið hafi ekki staðið undir væntingum“ og „að hefja þyrfti rannsókn á því sem hefði misfarist“. Sjálfur gerandinn, fjármálaráðherrann Bjarni Benediktsson, fyrirskipaði ríkisendurskoðun að hefja rannsókn. .

Frá því þessar athugasemdir féllu hafa stjórnarliðar snúið við blaðinu. Spyrja hvert sé vandamálið, hvort fjármálaráðherra sé bannað að selja pabba sínum hlut í bankanum, benda á að salan auki fjármuni í þjóðarbúinu og spyrja hvort stjórnarandstaðan vilji þá frekar sleppa því að styðja við öryrkja og efla heilbrigðiskerfið!  

Það liggur fyrir að fjármálaráðherra var að selja eign almennings sem hefur gefið af sér umtalsverðan arð til reksturs grunnþjónustunnar. Við fáum auðvitað andvirði sölunnar til ráðstöfunar en það er forkastanlegt að selja hlut, þar sem umframeftirspurn er til staðar, á lægra verði.

Í kynningu til Alþingis var undanþága laganna um lokað útboð réttlætt með því að verið væri að sækja vel stönduga langtímafjárfesta, sem gætu jafnvel komið bankanum til aðstoðar ef harðnaði í ári, og að sölumeðferð yrði ódýrari.

Þetta útboð var ekki framkvæmt á jafnræðisgrundvelli og er það skýrt brot á lögum. Ef allir sem uppfylla sett skilyrði geta boðið í og fengið úthlutað í samræmi við það þá er jafnræðis gætt. Svo var alls ekki í þessu tilviki heldur voru sérvaldir fimm söluaðilar sem höfðu samband við sinn kúnnahóp og aðra ekki. Þau sem uppfylltu öll skilyrði, en voru ekki á lista þessara tilteknu seljenda gátu því ekki boðið í. Jafnræðis var ekki gætt.  

Ef hinir handvöldu kaupendur hefðu svo allir uppfyllt skilyrðin um stórkaup til lengri tíma þá hefði mátt segja að amk það skilyrði hefði verið uppfyllt. Svo var heldur ekki því meðal kaupenda eru rúmlega 50 aðilar sem keyptu fyrir lægri fjárhæðir og þurftu sumir jafnvel að slá lán fyrir kaupunum.

Forsætisráðherra segir að gagnsæi þurfi að ríkja við sölu á ríkisfyrirtækjum en augljóst er að ríkisstjórnin nýtur ekki nauðsynlegs trausts til verksins. Það þarf að fara ofan í saumana á öllu ferlinu, hverjir fengu að selja, hverjir voru fengnir til ráðgjafar fyrir milljónatugi án útboðs og loks hverjir fengu að kaupa á sérkjörum. Það eina sem enginn vafi leikur á er að fjármálaráðherra ber lagalega og pólitíska ábyrgð og því ber honum að víkja án tafar.

Æviágrip á vef Alþingis

Smelltu hér til að skoða æviágrip á vef Alþingis
Opna

Fylgstu með

Skráðu þig á póstlistann hjá mér og fylgstu með þeim málefnum sem ég er að vinna að hverju sinni.
Skrá mig
linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram